Skip to product information
1 of 2

Útleiga fyrir sólmyrkva - Bresser Sirius 70mm linsusjónauki + sólarsía

Útleiga fyrir sólmyrkva - Bresser Sirius 70mm linsusjónauki + sólarsía

Regular price 12.000 ISK
Regular price Sale price 12.000 ISK
Sale Sold out
Taxes included.

SJÓNAUKI TIL ÚTLEIGU FYRIR FERÐAÞJÓNUSTUFYRIRTÆKI MEÐ SÓLARSÍU. HAFÐU SAMBAND TIL AÐ ÓSKA EFTIR AÐ LEIGJA BÚNAÐ, contact@icelandatnight.is VERÐ ER LEIGUVERÐ. FULLT SÖLUVERÐ ER 24.990 kr.

Fyrirtaks linsusjónauki fyrir byrjendur, einfaldur í notkun og því kjörinn fyrir yngsta áhugafólkið sem er að stíga sín fyrstu skref í stjörnuskoðun. 70mm ljósopið hentar vel til að skoða tunglið, reikistjörnur og björtustu djúpfyrirbæri eins og vetrarbrautir, stjörnuþyrpingar og geimþokur. Þá er einnig hægt að nota hann sem útsýnissjónauka að degi til.

Sjónaukanum fylgir örugg sólarsía sem uppfyllir alla öryggisstaðla. Sjónaukinn er því vel til þess fallinn að fylgjast með sólblettum og sólmyrkvum.

ATH! Gæta þarf ítrustu varúðar þegar sólin er skoðun. Skoðaðu sólarsíuna alltaf áður en þú festir hana framan á ljósop sjónaukans. Fullorðnir aðstoði börn.

Sjónaukinn er á stöðugu stæði sem er fljótlegt í uppsetningu og meðfærilegt. Tilvalið að grípa sjónaukann með sér hvert sem er.

Helstu upplýsingar

  • Vandaður linsusjónauki á einföldu stæði sem hentar byrjendum sérstaklega vel
  • Sólarsía fylgir svo sjónaukinn gagnast í stjörnuskoðun og sólskoðun 
  • Ljósop: 70mm
  • Brennivídd: 900mm 
  • Brennihlutfall: f/12,9 (sjónsvið þrengist en myndin skörp)
  • Mesta gagnlega stækkun: 140x
  • Stækkun sem fylgir: 45x (20mm augngler) 
  • Punkt-miðari

VIð mælum ekki með því að 4mm augnglerið og 3x Barlow-linsan sem fylgja með séu notuð. Þau skila einfaldlega stækkun sem sjónaukinn ræður ekki við. En það má alltaf prófa :)

View full details
Your cart
Product Product subtotal Quantity Price Product subtotal
Útleiga fyrir sólmyrkva - Bresser Sirius 70mm linsusjónauki + sólarsía
Útleiga fyrir sólmyrkva - Bresser Sirius 70mm linsusjónauki + sólarsía
Útleiga fyrir sólmyrkva - Bresser Sirius 70mm linsusjónauki + sólarsía
12.000 kr/ea
0 kr
12.000 kr/ea 0 kr