Sólmyrkvagleraugu (10 stk) til að fylgjast með sólmyrkvum og stórum sólblettum á öruggan hátt. Úr hágæða AstroSolar® ljóssíu frá þýska framleiðandanum Baader Planetarium.
Hágæða sólarsía, AstroSolar® Safety Film 5.0, til að skoða sólina og taka ljósmyndir af henni við mikla stækkun. Sólarsía er alltaf sett framan á ljósop sjónauka eða myndavélalinsu. Í þessu tilviki er örkin 20x29cm (A4) svo gæta þarf þess að hún sé vel föst á sjónaukanum. Ódýrasta mögulega lausn til að skoða sólina á öruggan hátt.
Ljósþéttni (optical density) = 5.0.
Ljósfræðilegir eiginleikar á pari við bestu linsur í hágæða sjónaukum frá Carl Zeiss og Astro-Physics.