1
/
of
3
Bresser Arcturus 60/700 AZ - linsusjónauki með sólarsíu og snjallsímatengi
Bresser Arcturus 60/700 AZ - linsusjónauki með sólarsíu og snjallsímatengi
Regular price
17.990 ISK
Regular price
Sale price
17.990 ISK
Unit price
/
per
Taxes included.
Einfaldur en vandaður stjörnusjónauki fyrir yngsta stjörnuáhugafólkið. Tilvalinn fyrir krakka sem vilja skoða tunglið, reikistjörnurnar, björt djúpfyrirbæri og útsýnið í kringum okkur á daginn. Hentar líka til sólskoðunar því sólarsía fylgir með auk tengis til að taka ljósmyndir af tunglinu með snjallsíma í gegnum augnlinsu sjónaukans.
- Sýnir vel gíga og fjöll á tunglinu
- Sýnir hringa Satúrnusar og skýjabelti og Galíleótungl Júpíters
- Sýnir björt djúpfyrirbæri eins og Sverðþokuna í Óríon og Andrómeduvetrarbrautina
- Kjörinn fyrir sólmyrkvann og til að skoða sólbletti á sólinni þess utan
Tæknilýsing
- Tegund: Linsusjónauki
- Stæði: Lóðstillt (mjög einfalt í notkun) á álþrífæti
- Ljósop: 60mm
- Brennivídd: 700mm
- F/hlutfall: 11
- Mesta gagnlega stækkun: 140x
- Leitarsjónauki: Punktmiðari
- Tvær augnglinsur fylgja sem gefa 35x stækkun (20mm) og 175x stækkun (4mm)
- Barlow-linsa sem stækkar þrefalt, hentar 20mm glerinu sem gefur þá 105x stækkun (mælum ekki með því að nota það með 4mm glerinu)
- Sólarsía fylgir
- Snjallsímatengi fylgir
ATH! Sólarsían á ALLTAF að vera kyrfilega föst fremst á sjónaukanum þegar sólin er skoðuð.
Share


