SkyWatcher Heliostar-76Ha + SolarQuest stæði
SkyWatcher Heliostar-76Ha + SolarQuest stæði
SkyWatcher Heliostar-76 sólarsjónaukinn er ómissandi viðbót í græjusafn stjörnuáhugamannsins.
SolarQuest stæðið er rafdrifið sjónaukastæði sem fylgir eftir snúningi Jarðar og heldur sólinni þannig í sjónsviðinu yfir langan tíma. Stæðið notar 8 AA rafhlöður.
Þessi frábæri sjónauki sýnir lithvolf sólarinnar þar sem hægt er að sjá glæsilega sólstróka (sólgos) og sólbendla. Sjónaukinn hleypir aðeins í gegn rauðum bjarma vetnis-alfa linunnar í litrófi sólarinnar. Sólin er þess vegna rauðleit að sjá í gegnum sjónaukann.
Sjónaukinn hefur tvístaflaðar síur sem þýðir að mun meiri smáatriði koma fram en með sambærilegum einstöfluðum sólarsjónaukum. Þá er sjónsviðið líka vítt (11,5mm) svo sólin passar öll í sviðið þótt notuð sé miðlungsstækkun. Í H-alfa sjónaukum er sjónsviðið oft mjög þröngt.
Með þessum frábæra sjónauka fylgir:
- Taska
- SolarQuest rafdrifið sjónaukastæði (einungis fyrir sólskoðun)
- 20mm augnlinsa með 70° sýndarsjónsviði sem gefur 32x stækkun
- Snjallsímatengi
- Heliostar sól-miðari, festihringir og handfang sem auðveldar öruggan flutning
- Sólskyggni
- Trifid Tuner og Solis Etalon Technology
- <0.5Å bandvídd
- 2-tommu dual-speed Crayford fókus
- 11,5mm, 1.25” diagonal blocking filter
- Þyngd: 4 kg
Tæknilýsing:
- Ljósop: 76mm
- F/hlutfall: F/8,3
- Brennivídd: 630mm

Share
