Skip to product information
1 of 2

SkyWatcher Heliostar-76Ha sólarsjónauki

SkyWatcher Heliostar-76Ha sólarsjónauki

Regular price 399.990 ISK
Regular price Sale price 399.990 ISK
Sale Sold out
Taxes included.

SkyWatcher Heliostar-76 sólarsjónaukinn er ómissandi viðbót í græjusafn stjörnuáhugamannsins.

Þessi frábæri sjónauki sýnir lithvolf sólarinnar þar sem hægt er að sjá glæsilega sólstróka (sólgos) og sólbendla. Sjónaukinn hleypir aðeins í gegn rauðum bjarma vetnis-alfa linunnar í litrófi sólarinnar. Sólin er þess vegna rauðleit að sjá í gegnum sjónaukann. 

Sjónaukinn hefur tvístaflaðar síur sem þýðir að mun meiri smáatriði koma fram en með sambærilegum einstöfluðum sólarsjónaukum. Þá er sjónsviðið líka vítt (11,5mm) svo sólin passar öll í sviðið þótt notuð sé miðlungsstækkun. Í H-alfa sjónaukum er sjónsviðið oft mjög þröngt. 

Með þessum frábæra sjónauka fylgir:

  • Taska
  • 20mm augnlinsa með 70° sýndarsjónsviði sem gefur 32x stækkun
  • Snjallsímatengi
  • Heliostar sól-miðari, festihringir og handfang sem auðveldar öruggan flutning
  • Sólskyggni
  • Trifid Tuner og Solis Etalon Technology
  • <0.5Å bandvídd
  • 2-tommu dual-speed Crayford fókus
  • 11,5mm, 1.25” diagonal blocking filter
  • Þyngd: 4 kg

Tæknilýsing:

  • Ljósop: 76mm
  • F/hlutfall: F/8,3
  • Brennivídd: 630mm
Sólin í gegnum H-alfa sjónauka
View full details
Your cart
Product Product subtotal Quantity Price Product subtotal
SkyWatcher Heliostar-76Ha sólarsjónauki
SkyWatcher Heliostar-76Ha sólarsjónaukiS11315
SkyWatcher Heliostar-76Ha sólarsjónaukiS11315
399.990 kr/ea
0 kr
399.990 kr/ea 0 kr