1
/
of
1
Sólmyrkvagleraugu - Reykjavík 12. ágúst 2026
Sólmyrkvagleraugu - Reykjavík 12. ágúst 2026
Regular price
600 ISK
Regular price
Sale price
600 ISK
Unit price
/
per
Taxes included.
Þann 12. ágúst 2026 fellur alskuggi tunglsins á Reykjavík Í fyrsta sinn síðan 17. júní 1433. Eftir 2026 fá íbúar á höfuðborgarsvæðinu næsta tækifæri eftir 219 ár eða 26. maí 2245. Síðan ekkert fyrr en einhvern tímann eftir árið 3000. Þá verður gott að hafa sérstök Reykjavíkur-sólmyrkvagleraugu á lofti.
Sólmyrkvagleraugu til að fylgjast með sólmyrkvanum 2026 og stórum sólblettum á öruggan hátt.
- 100% vernd gegn útfjólubláu ljósi,
- 100% vernd gegn innrauðu ljósi,
- síar burt 99,999% af styrk sólarljóssins.
Sólin er appelsínugul og þægileg á að líta í gegnum gleraugun.
CE / ISO vottað, uppfyllir ítrustu kröfur um öryggi augna, EN ISO 12312-2:2015.
Framleitt í Bandaríkjunum.
Sala á sólmyrkvagleraugum er fjáröflun fyrir fræðsluverkefni um sólmyrkvann 2026. Stuðningur þinn skiptir öllu máli.
Hægt er að sérmerkja gleraugu en þá er lágmarkspöntun 500-1000 gleraugu. Hafðu samband fyrir verð og nánari upplýsingar.
Hafðu einnig samband fyrir magnkaup fyrir hótel, fyrirtæki og stofnanir á contact@icelandatnight.is
Share
