1
/
of
2
Solar Scout 60-DS H-alfa sólarsjónauki
Solar Scout 60-DS H-alfa sólarsjónauki
Regular price
189.990 ISK
Regular price
Sale price
189.990 ISK
Unit price
/
per
Taxes included.
SolarScout 60-DS frá Daystar er hágæða 60mm linsusjónauki til að skoða og taka myndir af sólinni í H-alfa sem sýna sólstróka og sólbendla (sólgos) í lithvolfi sólarinnar. Skrúfufókusinn hjálpar til við að ná góðum fókus hratt og örugglega. Sjónaukinn hefur auk þess innbyggðan miðara sem auðveldar mjög að finna sólina á himninum.
- Hágæða 60mm linsusjónauki
- Nákvæmur skrúfufókus (helical) fyrir bæði sjónskoðun og ljósmyndun - sígur ekki og snýr ekki augnglerinu
- Tví-staflaður (double stack) sem gerir kleift að sjá fínni smáatriði
- Micro-USB tengi
- 'Solar Bullet' miðari - öruggur og einfaldur í notkun
- Vixen / Ljósmyndavélafesting fyrir þrífóti
- 930mm brennivídd
Solar Scout sólarsjónaukinn inniheldur QUARK H-alfs síu. Í henni er innbyggður hitari sem tryggir að sían starfi eðlilega.
Share

