Lunt 50mm H-alfa sólarsjónauki er ómissandi viðbót í græjusafn stjörnuáhugamannsins. Þessi frábæri sjónauki sýnir lithvolf sólarinnar þar sem hægt er að sjá glæsilega sólstróka (sólgos) og sólbendla. Sjónaukinn hleypir aðeins í gegn rauðum bjarma vetnis-alfa linunnar í litrófi sólarinnar. Sólin er þess vegna rauðleit að sjá í gegnum sjónaukann.
- Sérstakur sjónauki til að skoða aðeins sólina
- Fullkomlega öruggur, engin hætta á augnskaða
- Sýnir sólstróka, sólbendla, sólflekki, sólbletti og ýrur á sólinni
- Einfaldur í notkun - hentar byrjendum og lengra komnum vel
Fylgihlutir sem mælt er með aukalega
Tæknilýsing:
- Tegund sjónauka: H-alfa sólarsjónauki (656nm bylgjulengd)
- Ljósop: 50mm
- F/hlutfall: F/10
- Brennivídd: 350mm
- Bandsía: <0,75 Å einstaflað <0,5 Å tvístaflað (double-stack, sérpöntun)
- Stærð á síu: 6mm (því stærri sem sían er, því stærra er sjónsviðið)
- Lengd: 37cm
- Þyngd: 2.1kg