Alhliða linsusjónauki til að skoða sólina í H-alfa, sem og í stjörnuskoðun og stjörnuljósmyndun. Auðvelt er að breyta útfærslu sjónaukans. Hentar sömuleiðis vel til að taka ljósmyndir af sólinni.
Lunt 60mm alhliða sjónaukinn er ómissandi viðbót í græjusafn stjörnuáhugamannsins. Þessi frábæri sjónauki sýnir lithvolf sólarinnar þar sem hægt er að sjá glæsilega sólstróka (sólgos) og sólbendla. Sjónaukinn hleypir aðeins í gegn rauðum bjarma vetnis-alfa linunnar í litrófi sólarinnar. Sólin er þess vegna rauðleit að sjá í gegnum sjónaukann.
- Hentar í sólskoðun, stjörnuskoðun, útsýnisskoðun (með prisma) og stjörnuljósmyndun
- Fullkomlega öruggur, engin hætta á augnskaða
- Sýnir sólstróka, sólbendla, sólflekki, sólbletti og ýrur á sólinni
- Einfaldur í notkun
Innifalið:
- Lunt 60MT alhliðasjónauki
- Þrýstistillir (fyrir sólskoðun)
- B600 H-alfa ljóssía í prisma
- 2 tommu fókus
- Þrífótarfesting
- Taska
ATH! Kaupa þarf sérstaklega prisma ef breyta á sjónaukanum í útsýnissjónauka að degi til, sem og til að auðvelda
Tæknilýsing:
- Tegund sjónauka: Lithreinn linsusjónauki (2 linsa, FPL-51)
- 70mm ljósop (í stjörnuskoðun/stjörnuljósmyndun)
- 60mm ljósop í H-alfa sólskoðun (656nm bylgjulengd)
- Brennivídd: 420mm
- Bandsía: <0,7 Ångström einstaflað <0,5 Å tvístaflað (double-stack, sérpöntun)
- Stærð á síu: 6mm (því stærri sem sían er, því stærra er sjónsviðið)
- Staðalþrífótafesting
- Þyngd með H-alfa einingunni: 3,8 kg
- Þyngd án H-alfa einingarinnar: 2,6 kg
- Lengd með H-alfa einingunni: 40 cm
- Lengd án H-alfa einingarinnar: 31 cm
Ítarlegri upplýsingar