Sólarsjónaukar
Uppselt

Lunt Solar Systems

Lunt 80mm B1200 H-alfa APO sólar- og stjörnusjónauki

1.259.990 ISK
VSK Innifalinn



Alhliða linsusjónauki til að skoða sólina í H-alfa, sem og í stjörnuskoðun og stjörnuljósmyndun. Auðvelt er að breyta útfærslu sjónaukans. Hentar sömuleiðis vel til að taka ljósmyndir af sólinni.

Lunt 80mm alhliða sjónaukinn er ómissandi viðbót í græjusafn stjörnuáhugamannsins. Þessi frábæri sjónauki sýnir lithvolf sólarinnar þar sem hægt er að sjá glæsilega sólstróka (sólgos) og sólbendla. Sjónaukinn hleypir aðeins í gegn rauðum bjarma vetnis-alfa linunnar í litrófi sólarinnar. Sólin er þess vegna rauðleit að sjá í gegnum sjónaukann. 

  • Hentar í sólskoðun, stjörnuskoðun, útsýnisskoðun (með prisma) og stjörnuljósmyndun
  • Fullkomlega öruggur, engin hætta á augnskaða
  • Sýnir sólstróka, sólbendla, sólflekki, sólbletti og ýrur á sólinni
  • Einfaldur í notkun 

Innifalið:

  • Lunt 80MT alhliðasjónauki
  • Þrýstistillir (fyrir sólskoðun)
  • B600 H-alfa ljóssía í prisma
  • 2 tommu fókus
  • Þrífótarfesting
  • Taska

ATH! Kaupa þarf sérstaklega prisma ef breyta á sjónaukanum í útsýnissjónauka að degi til, sem og til að auðvelda 

Tæknilýsing:

  • Tegund sjónauka: Lithreinn linsusjónauki (2 linsa, FPL-51)
  • 70mm ljósop (í stjörnuskoðun/stjörnuljósmyndun)
  • 60mm ljósop í H-alfa sólskoðun (656nm bylgjulengd)
  • Brennivídd: 420mm
  • Bandsía: <0,7 Ångström einstaflað  <0,5 Å tvístaflað (double-stack, sérpöntun)
  • Stærð á síu: 6mm (því stærri sem sían er, því stærra er sjónsviðið)
  • Staðalþrífótafesting
  • Þyngd með H-alfa einingunni: 3,8 kg
  • Þyngd án H-alfa einingarinnar: 2,6 kg
  • Lengd með H-alfa einingunni: 40 cm
  • Lengd án H-alfa einingarinnar: 31 cm

Ítarlegri upplýsingar